Opnun tilboða
Hringvegur (1), steypt vegrið á Borgarfjarðarfyllingu, framleiðsla
Tilboð opnuð 7. febrúar 2012. Framleiðslu á 4-8 m löngum steyptum vegriðseiningum á vegfyllingu Hringvegar yfir Borgarfjörð. Vegriðseiningarnar skulu afhentar á geymslusvæði á Seleyri við Borgarfjörð.
Helstu magntölur eru:
Framleiðsla og flutningur steinsteyptra vegriðseininga 2.600 m
Lokið skal við að framleiða og afhenda allar vegriðseiningarnar eigi síðar en 15. október 2012.
Bjóðandi | Tilboð kr. | Hlutfall | Frávik þús.kr. |
Magnús I. Jónsson, Svínavatni | 80.000.000 | 107,4 | 34.028 |
Áætlaður verktakakostnaður | 74.500.000 | 100,0 | 28.528 |
Ístak hf., Reykjavík | 70.062.200 | 94,0 | 24.090 |
Loftorka í Borgarnesi ehf., Borgarnesi | 57.460.000 | 77,1 | 11.488 |
Esju-Einingar ehf, Reykjavík | 46.345.250 | 62,2 | 373 |
Hraun- Sandur ehf., Reykjavík | 45.972.397 | 61,7 | 0 |
Magnús I. Jónssson, Loftorka í Borgarnesi ehf. og Hraun- Sandur ehf. skiluðu einnig inn frávikstilboðum. Auk þess barst frávikstilboð frá Einingarverksmiðjunni ehf. í Reykjavík.